Vetrarfrí grunnskóla Árborgar og skólavistunar

Kæru foreldrar og fjölskyldur

Vetrarfrí í grunnskólum Árborgar og í skólavistunum er fimmtudaginn 23. og föstudaginn 24. febrúar.

Vetrarfríið er meðal annars ætlað til þess að skapa skemmtilegar samverustundir með fjölskyldunni.

Þessa daga munu þó nokkrir starfsmenn Hulduheima eyða vetrarfríinu fjarri sínum vinnustað með börnum sínum.

Af þeim sökum mun flest allt skipulagt starf í Hulduheimum liggja niðri þessa daga

og margt vera gert öðruvísi en venjulega.

Mig langar að biðja ykkur um að sýna því skilning og umburðarlyndi.

Bestu kveðjur

Kristrún Hafliðadóttir leikskólastjóri