Hulduheimar áttu afmæli 14. nóvember og urðu 6 ára þann dag. Af því tilefni færði foreldrafélagið okkur að gjöf mjög skemmtilega segulkubba og stórskemmtilegt þrautaspil þar sem heldur betur reynir á rökhugsun og útsjónarsemi. Nokkur börn eru búin að prófa og það var einróma álit þeirra að vel hefði verið valið. Við þökkum kærlega fyrir okkur, þetta mun nýtast börnunum ykkar, kæru foreldrar, mjög vel. Bestu þakkir og kveðjur börn og starfsfólk Hulduheima.