Leikskólataskan

Það er markmið okkar hér í leikskólanum að börnunum líði sem best í leik og starfi. Til þess að þeim líði vel er nauðsynlegt að klæðnaður þeirra sé þægilegur og uppfylli þær kröfur að barninu sé hlýtt, það sé þurrt og fötin hefti það ekki við leik.

Útiföt þurfa að vera þægileg og helst þannig að barnið geti hjálpað sér sem mest sjálft.
Á suðurlandi er allra veðra von þannig að það er nauðsynlegt að hafa föt við hæfi í leikskólanum.
Í leikskóla eru börn að leika sér. Þau eru að föndra, borða, þvo sér og leika úti. Í þessum verkefnum geta fötin blotnað eða orðið skítug. Þess vegna er mikilvægt að börnin séu með föt til skiptanna. Fylgist vel með hvað fer úr körfunni/hólfinu og munið eftir að taka blaut/óhrein föt með heim eftir hvern dag.

Einnig þarf að athuga hvort að útiföt séu í lagi og tilbúin fyrir næsta dag.

Mikilvægt er að merkja fötin vel (sérstaklega útiföt og utan yfir peysur) til að koma í veg fyrir rugling þar sem margir eiga eins föt.

Hér fyrir neðan er listi yfir þau föt sem við teljum að nauðsynlegt sé að hafa í leikskólanum.

 

Listi

Útiföt

  • Pollagalli
  • Kuldagalli
  • Hlý peysa
  • Húfa
  • Ullarsokkar
  • 2 -3 pör af vettlingum
  • Kuldaskór yfir vetrartímann
  • Vaðstígvél
  • Léttir skór yfir sumartímann
  • Létt húfa eða buff yfir sumartímann.

Aukaföt

  • 2-3 nærbuxur
  • 2-3 nærbolir
  • 2 sokkar/sokkabuxur
  • 1 buxur
  • 1 bolur
  • 1 peysa