Samstarf leik- og grunnskóla

Í sveitarfélaginu Árborg er starfandi faghópur um samstarf leik- og grunnskóla sem kallast "Brúum bilið". Faghópurinn fundar reglulega yfir skólaárið og endurmetur og skipuleggur samstarfið.

Við lok leikskólagöngu senda deildarstjórar frá sér gögn til grunnskóla þar sem eru upplýsingar um stöðu nemenda. Sérstakir skilafundir eru haldnir ef þurfa þykir.  Lögð er áhersla á að skil milli skólastiga verði eins auðveld og þægileg og kostur er á.

Hulduheimar eru í samstarfi við Sunnulækjarskóla um heimsóknir milli leik- og grunnskóla.

Samstarf-leik-og-grunn