regnbogi                    

 

Grunnskólaheimsóknir á Regnbogadegi

 

Föstudaginn 8.mars fara öll elstu börnin að heimsækja Vallaskóla.  Við verðum í skólavistuninni Bifröst og svo förum við í litlum hópum inn í kennslustundir og um skólann.  Við leggjum snemma af stað frá leikskólanum eða kl 8:45,  því er mikilvægt að börnin séu mætt fyrir þann tíma. 

Í ár höfum við það þannig að öll börn heimsækja báða grunnskólana óháð því í hvorn þau munu svo stunda nám í. Samfélagið hér á Selfossi býður upp á tvo grunnskóla og sjálfsagt að börnin kynnist þeim báðum.

Kær kveðja

Svava, Íris og Kristín

deildarstjórar eldri deilda

~~~~~oo~~~~~