Í dag ákváðum við í bláa hóp að búa til bolluvendi. Við skelltum okkur í úlpu og skó og flýttum okkur í skóginn að velja greinar í bolluvöndinn. Þegar komið var aftur í leikskólann var teiknuð mynd á blað, hún svo klippt út og heftað hringinn. Fylltum svo ,,pokann“ af dagblöðumm greininni stungið í og þá mátti byrja að bolla 🙂