Að heimsækja kisu

008 009 010 011 012 013 015 017 018 020 021 029 032 033 035 036 037 038 040 041 042 043 044 046 047

Rauði hópur og Græni hópur fóru í gönguferð heim til Bjargar að hitta kisurnar sem búa þar. Önnur var ekki heima en Branda var bara stillt og góð og lét sig hafa það að láta klappa sér og skoða. Kannski vorum við pínulítið hrædd við kisu…en svo hættum við því náttúrulega og klöppuðum henni, enda er hún bæði mjúk og góð. Stundum þurfti Branda að hoppa aðeins út um gluggann eða fela sig undir sófa en við náðum þá bara í hana aftur. Við skoðuðum matinn vatnið og sandinn….agalega merkilegt og spennandi! Við ætlum að fara aftur og skoða hina kisuna líka…og kannski eittvað fleira, við vorum öll svo prúð og dugleg!!