Hratt og hægt og skemmtilegt!

Rauði hópur vann með hugtökin hratt og hægt í síðasta tónlistartíma. Allir nemendur voru duglegir að hlusta á tóndæmi og svo spiluðum við ýmist hægt eða hratt á hljóðfæri…og við náttúrulega skiptumst á með hljóðfærin, ýmsar hristur, regnstokk og skröpu. Erfiðast var að dansa eftir hljómfalli…skemmtilegast að dansa hratt en þegar tónlistin er hæg þá er víst viðeigandi að dansa hægt….pfft!