Afmælisbarn !

Hún Manúela Tanja er orðin tveggja ára! Hún hélt upp á daginn með félögum sínum í leikskólanum. Útbjó fallega kórónu,  valdi sparistell á matmálstímum, var borðþjónn og valdi afmælisleik sem allir fóru í þegar allir voru búnir að syngja fyrir hana og trúðurinn búinn að spila. Manúela valdi dans en eftir að dansa svolítið valdi Manúela að kubba með vinum sínum. Það er skemmtilegt að eiga afmæli! Til hamingju með afmælið elsku Manúela Tanja!