Miðvikudaginn 3. febrúar var svartur dagur hjá okkur á Hulduheimum. Allar deildir komu saman í salnum og sungu saman nokkur lög í tilefni svarta dagsins. Í hádeginu héldum við svo Þorrablót og fengum við þorramat, bæði súrt og ósúrt og vakti það mismikinn áhuga barnanna. Allir fengu að smakka allt 🙂 Takk fyrir skemmtilegan dag !:)