Svarti dagurinn og Þorrablótið 2016

Stemningin var gríðarlega góð eins og sjá má!  🙂   Allir fengu eitthvað við sitt hæfi á langborðinu. Boðið var upp á ekta súrmat, punga, hákarl, hangiket, sviðasultu, flat- og rúgbrauð, síld, harðfisk og rótargrænmeti…..bara gerist ekki flottara. Fólk var að sjálfsögðu ekki látið smakka ef eitthvað þótti ekki girnilegt, eitthvað var um að fólki þótti maturinn lykta hálf illa en margir tóku hraustlega til matar síns!  🙂