Afmæli Hulduheima

Hulduheimar verða 7 ára á morgun 14. nóvember.

Þá ætlum við að sjálfsögðu að gera okkur glaðan dag og mæta í náttfötum.

Það má líka hafa þau með sér.

Síðan verður haldið feikna náttfataball í Matthíasarskógi, sungið, trallað og dansað.

Í hádeginu snæðum við síðan pizzu og skellum í snúða með síðdegiskaffinu.

Skemmtilegur dagur á morgun 😛 😛 😛