Rauði hópur og Græni hópur fóru í gönguferð heim til Bjargar að hitta kisurnar sem búa þar. Önnur var ekki heima en Branda var bara stillt og góð og lét sig hafa það að láta klappa sér og skoða. Kannski vorum við pínulítið hrædd við kisu…en svo hættum við því náttúrulega og klöppuðum henni, enda er hún bæði mjúk og góð. Stundum þurfti Branda að hoppa aðeins út um gluggann eða fela sig undir sófa en við náðum þá bara í hana aftur. Við skoðuðum matinn vatnið og sandinn….agalega merkilegt og spennandi! Við ætlum að fara aftur og skoða hina kisuna líka…og kannski eittvað fleira, við vorum öll svo prúð og dugleg!!