Afmæli Hulduheima 14.nóvember

Afmæli leikskólans var haldið hátíðalegt föstudaginn 14.nóvember s.l.
Í tilefni dagsins vorum við með söngstund í salnum þar sem við fengum góðan gest í heimsókn, Ingólf Þórarinsson (Ingó veðurguð) sem leiddi okkur í skemmtilegan söng og gleði.
Eftir söngstundina fengum við köku sem elstu börnin höfðu bakað og svo var flæði á milli deilda í sitthvorri álmu (eldri/yngri).