Hulduheimar verða 7 ára á morgun 14. nóvember.
Þá ætlum við að sjálfsögðu að gera okkur glaðan dag og mæta í náttfötum.
Það má líka hafa þau með sér.
Síðan verður haldið feikna náttfataball í Matthíasarskógi, sungið, trallað og dansað.
Í hádeginu snæðum við síðan pizzu og skellum í snúða með síðdegiskaffinu.
Skemmtilegur dagur á morgun 😛 😛 😛