Afmælisbarn!

Hann Eyþór Orri er orðinn þriggja ára! Hann hélt upp á það með vinum sínum í leikskólanum á hefðbundinn hátt. Sjónarhólsnemar útbúa sjálfir flotta afmæliskórónu, eru borðþjónar þann dag (og skarta gjarnan kórónunni til að taka við heillaóskum) velja spariborðbúnað og halda veislu í Stóra hól þar sem sungið er fyrir afmælisbarnið og farið í leik eða leiki sem afmælisbarnið velur. Svo skemmtilegt!

Til hamingju með afmælið elsku Eyþór Orri !