Afmælisstelpa

002                     Mars-apríl'13 058

Kolbrún Inga er orðin, eins og sjá má, fjögurra ára! Til hamingju! Á Sjónarhóli halda afmælisbörn daginn hátíðlegan m.a. með því að útbúa sér kórónu, bjóða félögum sínum í leiki sem þau velja, tekin er afmælismynd og sungið er fyrir afmælisbarnið, afmælisbarnið er borðþjónn þann dag og velur sér spariáhöld úr stórri kistu á kaffistofu leikskólans. Þar er mikið úrval og sem betur fer eru tvær og jafnvel þrjár máltíðir á dag svo afmælisbörn njóta sín í botn við að velja áhöld.