bjorgk

Kubbaleikir

Kubbaleikir eru endalaus uppspretta af möguleikum! Við eflum stærðfræðigreind, rökhugsun, sjálfstraust og samvinnu……. …..viltu vera memm?  

Þorrablót og svartur litadagur

       Mikið fjör á þorrablóti! Við útbjuggum kórónur í anda kóngafólks hér í denn, sungum öll saman í salnum ýmis þorralög og snæddum svo að venju þorramat. Allir duglegir að smakka og segja sína meiningu á matnum, margir voru hrifnir af hákarli og sumir ekki. Almenn ánægja samt með sviðasultu….hvað finnst þér best?