bjorgk

Föstudagsdansiball

Endrum og sinnum brestur á dansiball á Sjónarhóli…..á þessum myndum má sjá hvernig stemningin og  fjörið tók öll völd; við sungum og dönsuðum við  Búálfinn og fleiri lög, svo tók við freestyle á dansgólfinu!

Appelsínutré Sjónarhóls

Við erum að rækta appelsínutré! Dag einn fundum við fræ í appelsínu, fallegan stein sem er ekki steinn heldur fræ. Við settum fræið í mold í litlum blómapotti og vökvuðum það samviskusamlega….og sjáið bara hvað er að gerast! Lítið fallegt appelsínutré er að vaxa!!