Bókaormur

Mikill áhugi hefur verið hjá börnunum á Kirsuberjadal að koma með bækur í leikskólann sem er mjög gott. Nú ætlum við að setja af stað verkefni sem felst í því að þau koma heim með miða sem á stendur:

Ég er bókaormur í dag.

Þegar barnið fer heim með þennan miða kemur það með eina bók að heiman. Við biðjum ykkur að velja bók með barninu (helst ekki Disney-bækur). Mikilvægt er að bókin hafi verið lesin fyrir barnið heima því það segir frá bókinni og við tölum um hana, bókin er svo lesin í sögustund.