Bolluvendir

Í dag ákváðum við í bláa hóp að búa til bolluvendi.  Við skelltum okkur í úlpu og skó og flýttum okkur í skóginn að velja greinar í bolluvöndinn.  Þegar komið var aftur í leikskólann var teiknuð mynd á blað, hún svo klippt út og heftað hringinn.  Fylltum svo ,,pokann“ af dagblöðumm greininni stungið í og þá mátti byrja að bolla 🙂