Efst á forsíðu

Ljósmyndataka

Góðan daginn Annað hvert ár höfum við í stjórn foreldrafélags Hulduheima fengið ljósmyndara til að taka myndir af börnunum. Bæði hópmynd af hverri og einni deild og svo einstaklingsmynd af hverju og einu barni. Nú í ár er svo komið að myndatökunni og á morgun miðvikudaginn 5/11 og fimmtudaginn 6/11 mun ljósmyndari koma og taka …

Ljósmyndataka Read More »

Fyrirlestur um netnotkun barna á vegum SAFT

  Frábær fyrirlestur á vegum SAFT í gærkvöldi. Netnotkun barna tekin fyrir og hvað ber að varast. Fræðandi erindi um mál sem snerta okkur öll sem samfélagsþegnar. Allar glærur verða sendar á foreldra. Það verður nú að fylgja hér með að það var besta mætingin í Hulduheimum, takk kærlega fyrir góða kvöldstund.  

Haustþing

Haustþing 2014 Haustþing allra leikskóla á Suðurlandi verður haldið föstudaginn 3. október. Þingið er haldið til að efla fagþekkingu starfsfólks og er fjölbreytt endurmenntun fyrir alla sem nýtist beint í starfið. Af þeim sökum verða Hulduheimar lokaðir þennan dag.