Smálönd

Hulduheimar 9 ára

Föstudaginn 13. nóvember átti leikskólinn okkar 9 ára afmæli. Í tilefni dagsins var náttfatadagur, náttfataball, pylsur í hádeginu og vöfflur í kaffinu. Þetta var rosalega skemmtilegur dagur og höfðu allir mjög gaman af. Til hamingju með afmælið Hulduheimar 🙂

Jóna Karen 3 ára

Í dag á hún Jóna Karen okkar 3 ára afmæli. Við sungum afmælissönginn fyrir hana og síðan fékk hún að velja sér borðbúnað í hádegismatnum. Til hamingju með afmælið elsku Jóna Karen 🙂