Dagur leikskólans

6. febrúar ár hvert er dagur leikskólans á Íslandi. Þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín og er dagur leikskólans tileinkaður þeim. Við í Hulduheimum ætlum að gera okkur dagamun og fara í skrúðgöngu um kl. 10:30 þennan dag ef veður leyfir. Það verður voðalega gaman að arka öll í röð 155 talsins með fána og trommur í tilefni dagsins. Skemmtilegt það.