Dagur leikskólans

Þann 6. febrúar var dagur leikskólans en tilgangur hans er að gera leikskólastarf sýnilegt í samfélaginu. Af því tilefni skreyttu börnin blað til að gefa foreldrum sínum en á blaðinu var líka texti um leikskólann. Að morgni var svo flæði um allan leikskólann og þá máttu öll börn og starfsfólk fara frjálst á milli allra deilda.