Fyrsti snjórinn

Við vorum ansi dugleg að nýta fyrsta snjóinn, sem stoppaði stutt. Þá var gott að eiga stóra bræður til að hjálpa okkur 🙂 Við gerðum snjókarla (mini útgáfu), snjóengla, fullt af skemmtilegum sporum, gerðum snjóbolta og fylgdumst með snjónum bráðna. Æ já og við smökkuðum aðeins á honum líka 😉