Góð gjöf til leikskólans

Öllum leikskólum á landinu hefur borist gjöf frá Bryndísi Guðmundsdóttur talmeinafræðingi og styrktaraðilum sem eru henni að baki. Gjöfin er námsefnið Lærum og leikum með hljóðin ásamt aukaefni og fimm smáforrita fyrir iPad. Þetta gerir hún til að styðja við góðan grunn að læsi frá unga aldri. Foreldrar leikskólabarna njóta einnig góðs af því:

  1. Smáforrit Raddlistar alls fimm íslensk forrit verða opin án kostnaðar fyrir allar barnafjölskyldur frá 15.júlí fram í septemberlok. Sjá á https://apps.apple.com/us/developer/raddlist/id633990870

2. Vefnámskeið með fræðslu fyrir foreldra og skóla verða opin í gegnum Vimeo og fylgja gjöfinni. Tengill: https://vimeo.com/album/3533852
Aðgangsorð: namskeid25301

3. Fjöldi myndbanda á YouTube rásinni (laerumogleikum) útskýrir nánar hvernig á að nota efnið. Þar er meðal annars að finna vefnámskeið um notkun smáforritanna.