Guðni Már og Elísa Elenóra 3 ára.

Sunnudaginn 13. desember áttu Guðni Már og Elísa Elenóra 3 ára afmæli. Við héldum upp á afmælið hans Guðna Más föstudaginn 11. desember en þá var einmitt líka jólasveinahúfudagur hjá okkur. Hann bauð okkur upp á saltstangir og vínber.  Við héldum upp á afmæli  Elísu Elenóru mánudaginn 14. desember. Þau fengu bæði kórónu og sunginn var afmælissöngurinn. Einnig fengu þau að velja sér afmælisborðbúnað í hádeginu. Til hamingju með afmælið Guðni Már og Elísa Elenóra 🙂