Janúar

Það hefur ýmislegt verið brallað í janúar á Sjónarhóli.  Fyrst ber að nefna að bæði Brynja og Sigurbergur Orri urðu 3 ára í janúar, Brynja þann 6. og Sigurbergur Orri þann 19.

Byrnja að búa til kórónuna sína
Brynja að búa til kórónuna sína

 

012
3 ára afmælisstelpa

 

019
Hún valdi sér disk og glas í tilefni dagsins

 

020
og svo var dansað

 

016
Sigurbergur Orri 3 ára afmælisstrákur

 

020
Hann valdi sér einnig glas og disk í tilefni dagsins

   Eldri börnin á Sjónarhóli eru byrjuð að vinna í könnunaraðferðinni, þau ætla að vinna með krumma, en yngri börnin ætla að halda áfram að vera í könnunarleiknum en fá þau auðvitað líka að taka svolítinn þátt í þessu krummaverkefni.  Við erum búin að vera að ræða krumma heilmikið, syngja krummalög, fara með þulur og auðvitað að kíkja eftir krummi þegar við erum í útiveru.  Svo vorum við svo heppin að fá einn uppstoppaðan krumma í heimsókn sem vakti mikla lukku.  Þetta verkefni mun svo halda áfram eins lengi og áhugi barnanna leyfir. Eitthvað af verkefnunum fer upp á veggi en annað býður vorsýningarinnar í apríl.

033
Krummi skoðaður af Rauða hóp

 

001
Blái hópur í tónlistartíma

 Þarna eru þau að æfa sig í að skiptast á og um leið að læra litina ásamt því sem er skemmtilegast en það er að spila á hljóðfæri, dansa og syngja.

044
Græni hópur í könnunarleik

 Þarna voru drengirnir í græna hóp að uppgötva í fyrsta skipti og það er hægt að snúa dollunni við og slá á hana með tréstöfum og þá kemur þessi fíni hávaði.  Flottir 🙂

009
Beðið eftir hádegimatnum

 

010
Villi búin að byggja úr einingakubbunum

 

027
Eftir áramótin hefur verið hálfgert gleraugnaþema hjá okkur, öll sjúk í flugeldagleraugu 🙂

 

030
Fötin standa alltaf fyrir sínu og skemmtilegast er að vera í töskunni þegar tekið er til

~~~ oooOooo ~~~