Jólamaturinn 16. desember

Miðvikudaginn 16. desember fengum við jólamat í hádeginu. Þennan sama dag var líka jólaball hjá okkur í salnum. Þar komu foreldrar og dönsuðu með okkur í kringum jólatréð og var það rosalega skemmtilegt. Því miður náðust engar myndir af jólaballinu en við tókum myndir í matartímanum þegar við fengum jólasteik. Við vorum með kósý stemningu með rauðum ljósum og jólatónlist og þess vegna eru myndirnar svona rauðar 🙂 Með þessum síðustu myndum þessa árs þökkum við fyrir gott og skemmtilegt ár og óskum ykkur gleðilegra jóla. Sjáumst hress og kát og nýju ári 🙂