Fréttasafn
Fréttir frá Huldheimum
Eldar Elí 3 ára
Miðvikudaginn 7. október átti Eldar Elí okkar 3 ára afmæli. Við sungum öll afmælisönginn fyrir hann og svo bauð hann okkur uppá saltstangir. Síðan fékk hann að velja sér borðbúnað í tilefni dagsins. Til hamingju með afmælið elsku Eldar Elí. […]
Enginn er verri þótt vökni…eða hvernig er það?
Okkur finnst rosa gaman að leika og allt í lagi (kannski betra?) að verða blaut, öll út í sandi eða kannski bara málningu….. við erum dugleg!! 🙂
Regnbogadagur
Nú styttist í Regnbogadag á yngri deildum! 🙂 Við vorum svo heppin að sjá svona fallegan regnboga úti svo við reyndum að taka myndir……
Afmælisbarn !
Hún Manúela Tanja er orðin tveggja ára! Hún hélt upp á daginn með félögum sínum í leikskólanum. Útbjó fallega kórónu, valdi sparistell á matmálstímum, var borðþjónn og valdi afmælisleik sem allir fóru í þegar allir voru búnir að syngja fyrir […]
Smíðaskemma 1. október
Í dag fóru blái og græni hópur í Smíðaskemmu að mála. Þau undirbjuggu skilti sem við munum hafa uppi á Regnbogadögum hjá okkur. Í lokin lékum við okkur aðeins með dýrin inni í Smíðaskemmu 🙂
Munið: lokað á föstudaginn vegna Haustþings 2015!
Sæl öll. Allt starfsfólk leikskóla Suðurlands sækir fræðslu þann 2. október 2015. Þann dag eru leikskólarnir lokaðir. Góða helgi öllsömul, sjáumst kát á mánudaginn!
