Öskudagur

Miðvikudaginn 13. febrúar er öskudagur og þá höldum við öskudagsgleði í salnum. Yngri deildir eru kl. 10:00 og slá þá köttinn úr tunnunni í salnum, dansa og borða saltstangir. Eldri deildir halda sína gleði kl. 11:00 og dagskráin er mjög svipuð. Börnin mega koma öðruvísi klædd í leikskólann þennan dag, í búningum, náttfötum, sparifötum eða bara í venjulegum fötum. Við eigum andlitsmálningu hér ef einhverjir vilja láta skreyta sig aðeins. Þetta er mjög skemmtilegur dagur og margar kynjaverur á ferðinni :mrgreen: