Skógarferð

Í dag, miðvikudaginn 13. apríl,  fór hópurinn Tré í skógarferð. Í hópnum Tré eru Guðni Már, Elísa Elenóra, Þórunn Lind og Jóna Karen ásamt krökkum frá Sjónarhóli og Kattholti. Við vorum einstaklega heppin með veður í dag og sólin brosti við okkur. Eins og sjá má á myndunum skemmtu börnin sér rosalega vel, og kennarar ekki síður 🙂