Sýning á verkum barnanna eftir veturinn

Myndlistarsýning stendur yfir í Hulduheimum frá og með 5. maí til og með 19. maí.

Hún er opin frá kl. 8:00-15:30 og er á göngum hússins og í íþróttasalnum.

Endilega kíkið við og sjáið hvað ungu listamennirnir eru frjóir, flinkir og frumlegir.

Verið hjartanlega velkomin.

Börn og starfsfólk Hulduheima