Þrjú 2 ára afmæli

Svo skemmtilega vildi til að þrjú börn fædd 2012 áttu afmæli þrjá daga í röð hjá okkur á Smálöndum. Jökull Máni varð 2ja ára þann 11. febrúar og bauð hann okkur upp á frostpinna. Sara Nadía átti 2ja ára afmæli þann 12. febrúar og færði hún okkur saltstangir. Eiríkur Ingi varð svo 2ja ára þann 13. febrúar og færði hann okkur einnig saltstangir. Þau fengu afmælisborðbúnað og kórónu sem þau skreyttu sjálf. Einnig fengu þau sína eigin afmælisveilsu þar sem afmælissöngurinn var sunginn. Til hamingju með afmælin ykkar Jökull Máni, Sara Nadía og Eiríkur Ingi og takk fyrir okkur 🙂