Tónlist eldri hópa

Þvílíkt og annað eins!! Rauði hópur og Græni hópur hafa m.a.  verið að hlusta á Pétur og úlfinn í tónlist….þetta er nánast of hræðilegt fyrir okkur…..úlfurinn át öndina!!! Við biðjum aftur og aftur um að hlusta á þessa tónsögu en eins og myndirnar sýna áttum við fullt í fangi með að þora að heyra allt saman…..en við æfum okkur aldeilis vel að hlusta og fylgjast með….svo fer allt vel að lokum auðvitað, eins og bara í lífinu sjálfu. Frægur tónlistarkennari, Guðmundur Samúelsson sagði gjarnan við sína nemendur:

Það gengur nú aldrei verr en illa….