Okkar frábæra foreldrafélag hélt glæsilega vorhátíð! Þar kom fram Leikhópurinn Lotta með skemmtilega sýningu í salnum, gestir gæddu sér á ís og bakkelsi ásamt drykkjum, fáninn dreginn að húni og veifur blöktu í golunni, sjúkrabíll kom á svæðið og hægt var að skoða hann. Útskriftaraðalinn var heiðraður og sundpokarnir afhentir. Slökkviliðsbíll var líka á lóðinni og máttu þeir sem vildu spreyta sig á því að sprauta! Einnig var í boði að skella sér á hestbak eða bara klappa hestunum og horfa á hina…..ofsalega gaman!
Kærar þakkir öllsömul 🙂