Frábær sýning í boði foreldrafélags Hulduheima

037 009 013 018 019 025

Svona líka ofsalega gaman á sýningunni í morgun! Frábæra foreldrafélagið okkar bauð okkur á sýningu í salnum. Bernd Ogrodnik setti upp sýninguna Pétur og úlfurinn eftir Sergei Prokofieff. Kennararnir horfðu meira á nemendur en sýninguna því gleðin sem skein úr andlitum var yndisleg! Og spenningurinn var þvílíkur! Hrópað, hlegið, bent og klappað! Kærar þakkir fyrir frábæra sýningu 🙂