Pétur og úlfurinn

Kæru foreldrar

Við þökkum kærlega fyrir yndislega leiksýningu, Pétur og úlfinn, í morgun. Hún tókst mjög vel, öll börnin 130 sátu prúð og stillt í 45 mínútur og lifðu sig svo sannarlega inn í heim Péturs, afans, úlfsins, andarinnar, kattarins, fuglsins og veiðimannanna.

Spenningurinn og gleðin skein af hverju barni og af þeim fullorðnu líka. Þvílík snilld, Bernd brúðuleikari er snillingur og hann náði börnunum virkilega vel með sér í spennandi ævintýri.

Í lokin máttu síðan allir koma við leikbrúðuna Pétur og hann heilsaði og spjallaði við börnin. Frábært framtak hjá frábæru foreldrafélagi, enn og aftur, takk kærlega fyrir okkur 😀