Mat á skólastarfi
Mat á leikskólastarfi hefur þann tilgang að tryggja að réttindi leikskólabarna séu virt og þau fái þá menntun og þjónustu sem þeim ber samkvæmt lögum um leikskóla. (Aðalnámskrá leikskóla 2011).
Í 18. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 er kveðið á um að hver leikskóli skuli meta með kerfisbundnum hætti árangur og gæði skólastarfs. Í 19.gr. laganna segir að sveitarfélögin eigi síðan að fylgja innra matinu eftir þannig að það leiði til umbóta í skólastarfi. Tilgangur með mati er að afla vitneskju um árangur skólastarfsins og hvernig einstaklingnum og hópum gengur að ná settum markmiðum. Skólar skulu síðan gera grein fyrir viðmiðum námsmats í skólanámskrá þannig að nemendum, foreldrum og öllum starfsmönnum skóla sé ljóst hvaða kröfur eru gerðar og hvernig skólinn hyggst meta hvernig þær eru uppfylltar. Þannig aukum við gæði skólastarfsins og stuðlum að umbótum, tryggjum réttindi barna og þau fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á samkvæmt lögum.
Mat á leikskólastarfi er með ýmsum hætti og skiptist í innra og ytra mat. Þar sem skólastarf er umfangsmikið þá hefur leikskólinn gert matsáætlun (sjá starfsáætlun leikskólans) til fimm ára.
Innra matinu er ætlað að veita aðilum skólasamfélagsins og fræðsluyfirvöldum upplýsingar um skólastarfið, árangur þess og þróun. Innra mat fer fram daglega þar sem starfsfólk er sífellt að velta fyrir sér leiðum og aðferðum sem gagnast best í skólastarfinu. Deildarstjórafundir, deildarfundir og skipulagsdagar eru vettvangur starfsmanna til að gera mat og áætlanir. Helstu niðurstöður úr innra mati má sjá í starfsskýrslu Hulduheima.
Ytra mat er unnið á vegum sveitarfélagsins, mennta- og menningarmálaráðuneytinu eða annarra aðila. Í Árborg eru spurningalistar á vegum Skólapúlsins sendir til foreldra annað hvert ár þar sem þeim gefst tækifæri til að leggja mat á starfið og koma með ábendingar. Ytra mat sem gert er af Menntamálastofnun samkvæmt ósk leikskólans byggir á viðmiðum um gæði í leikskólastarfi. Matsaðilar koma í leikskólann og safna þar fjölbreyttum gögnum s.s niðurstöðum úr skriflegum gögnum, taka einstaklings- og rýnihópaviðtöl við starfsfólk, foreldra og nemendur auk þess að safna skráningum á vettvangi. Ytra mat var síðast gert í Hulduheimum vorið 2022 en hér má sjá skýrslu um niðurstöður.
Umbótaáætlun vegna ytra mats má sjá hér.
Skýrslu um innra mat fyrir skólaárið 2023-2024 má sjá hér
Umbótaáætlun skólaársins 2024-2025 má sjá hér.