Fréttasafn
Fréttir frá Huldheimum
Upprennandi hárgreiðslumeistarar
Eigendur hágreiðslustofunnar Stofan voru svo elskuleg að gefa leikskólanum hárgreiðslu græjur. Kærar þakkir, við erum efnilegir meistarar! 🙂
Sigtið sigtið….
Tveir vinir skiptast á að þræða í sigtið….ansi vandasamt og nauðsynlegt að einbeita sér vel!
Lambaferð á Eyrarbakka
Skemmtilega lambaferðin er að baki, þökkum öllum sem gátu komið með! Þetta var bæði lærdómsrík og skemmtileg ferð, börnin biðja á hverjum degi um að fá að fara aftur!
Lamb í heimsókn!
Hún Guðrún Eva á Kirsuberjadal kom með lambið sitt með sér í leikskólann og leyfði öllum krökkunum að sjá það og klappa því. Svona eru þau ljúf og spök lömbin á Byggðarhorni 🙂
Sumarblíðan og fínhreyfingarnar
Nú kallar góða veðrið á okkur og mikill tími fer í útiveru. Við nýtum þó hverja stund sem gefst til að þjálfa áfram fínhreyfifærnina okkar….hvað finnst ykkur skemmtilegt að dunda við?
Afmælisveislur
Þessir flottu strákar áttu afmæli og héldu uppá daginn í leikskólanum, á föstudegi og á mánudegi. Þeir bjuggu til kórónu, voru borðþjónar og völdu sér spariborðbúnað í tilefni dagsins! Afmælisbörn velja líka leiki til að fara …
Græn dagur á morgun
grænn dagur á morgun 8. maí gaman að koma með eitthvað grænt eða í einhverju grænu