Fréttasafn

Fréttir frá Huldheimum

4. mars 2013

Sigurbergur Orri pinnaði líka flotta mynd fyrir sína mömmu…..

4. mars 2013

Guðmunda búin að pinna fallega mynd handa mömmu sinni!

1. mars 2013

Vilhjálmur Hólm í dýraleik. Stærðfræðisnillingur hér á ferð?

Gönguferð Rauða hóps

1. mars 2013

Rauði hópur skrapp í gönguferð 28. febrúar. Þar voru miklir göngugarpar á ferð og eins og sjá má á myndunum var þetta ótrúlega skemmtileg ferð!

Konudagurinn

22. febrúar 2013

Konudagurinn er sunnudaginn 24. febrúar. Af því tilefni verður konudagskaffi föstudaginn 22. febrúar frá kl. 8-10 á öllum deildum. Kæru mömmur, ömmur, systur, frænkur og aðrir kvenkyns ættingjar kíkið við og eigið með okkur notalega morgunstund 😆

Öskudagur

22. febrúar 2013

Á Öskudaginn var auðvitað haldið ball í Matthíasarskógi og kötturinn sleginn úr tunnunni 🙂  ~~~000O000~~~

Þorrablót

22. febrúar 2013

Starfsmannafundur

19. febrúar 2013

19. febrúar er starfsmannafundur í Hulduheimum frá kl. 8:00-12:00 og þá er lokað. Við opnum kl. 12:00 þann daginn og byrjum á því að  fá okkur hádegismat.

Öskudagur

13. febrúar 2013

Miðvikudaginn 13. febrúar er öskudagur og þá höldum við öskudagsgleði í salnum. Yngri deildir eru kl. 10:00 og slá þá köttinn úr tunnunni í salnum, dansa og borða saltstangir. Eldri deildir halda sína gleði kl. 11:00 og dagskráin er mjög …

Öskudagur Read More »

Sprengidagur

12. febrúar 2013

Þriðjudaginn 12. febrúar er sprengidagur, þá borðum við mikið af saltkjöti og baunum, namm namm

Bolludagur

11. febrúar 2013

Mánudaginn 11. febrúar er bolludagur, þá fáum við fiskibollur í hádeginu og rjómabollur í eftirmiðdagskaffinu

Þorrablót

6. febrúar 2013

Þorrablót Hulduheima verður 6. febrúar. Þá förum við öll saman í salinn fyrir hádegismatinn, syngjum þorralög og eigum saman skemmtilega stund. Síðan hefst borðhald og þá fáum við dýrindis þorramat; slátur, sviðasultu, kartöflumús, rófustöppu, hákarl, harðfisk, rúgbrauð og síld.